Framrúða er mikilvægur öryggisþáttur í öllum atvinnubílum og er jafnframt mikilvægur hluti af burðarvirki ökutækis. Mikilvægt er að rúður séu heilar til að viðhalda styrk bifreiðarinnar og tryggja bílstjórum óskerta sýn við akstur.
Landfari er viðurkenndur þjónustuaðili þegar kemur að framrúðuviðgerðum og framrúðuskiptum. Við notum eingöngu fyrsta flokks gler, þéttingar, lím og önnur efni frá viðurkenndum framleiðendum og fylgjum vottuðum aðferðum til að tryggja hámarks gæði, öryggi og endingu.


