Rafmagnaðir vörubílar

Landfari leggur metnað í að bjóða fjölbreytt úrval rafmagnaðra vörubíla frá Mercedes-Benz.

Vörubílar, rafmagn - 100% rafmagn
Kynntu þér úrval rafmagnaðra Mercedes-Benz vörubíla hjá Landfara. Öflugar og hagkvæmar lausnir fyrir fjölbreytt verkefni og nútímalegan atvinnurekstur.
eActros 400 list image

eActros 400

Hannaður fyrir daglegan rekstur

eActros 600

Vörubíll ársins 2025

eArocs 400

Byggður á sterkum grunni Arocs

eEconic-model overview

eEconic

Rafknúinn í borgum og bæjum

Vissir þú?

  • Allt að 500 km á einni hleðslu. eActros 600 er hannaður fyrir langflutninga og getur náð um allt að 500 km drægni án millihleðslu við raunhæfar aðstæður með 40 tonna heildarþyngd. Með hleðslu í lögbundnum hvíldum ökumanns getur hann farið vel yfir 1.000 km á einum degi.
  • 621 kWh rafhlaða. eActros 600 er með þrjá 207 kWh rafhlöðupakka, samtals 621 kWh rafhlöðugeta.
  • Um 46 mínútur úr 10 í 80%. eActros 400 getur hlaðið með allt að 400 kW CCS2 og við viðeigandi aðstæður tekur um 46 mínútur að fara úr 10 í 80% hleðslu.
  • LFP rafhlöðutækni. eActros 400 og 600 nota litíum-járnfosfat rafhlöður (LFP). Þær innihalda hvorki nikkel né kóbalt og eru hannaðar með langan endingartíma í huga. Í eActros 600 er hægt að nýta meira en 95% af uppgefni rafhlöðugetu.
  • eArocs 400 er með 414 kWh LFP rafhlöðu og drægni allt að um 200 km sem steypubíll og allt að 240 km sem vörubíll með sturtupalli. Hann getur hlaðið með allt að 400 kW.
  • Endurheimtir orku við hemlun. eEconic nýtir hemlunarorku til að hlaða rafhlöðuna aftur, sem gerir rafdrifið sérstaklega hentugt í akstri með miklum stoppum, til dæmis sorphirðu og öðrum borgarverkefnum.
  • eActros 600 er International Truck of the Year 2025 (Vörubíll ársins 2025). Dómnefnd 24 atvinnubílablaðamanna víðs vegar um Evrópu veitti honum verðlaunin.

Reiknivél

Á vefsíðu Mercedes-Benz Trucks má finna reiknivél sem hjálpar þér að meta hagkvæmni rafknúins aksturs.

Þjónusta

Landfari rekur þrjú þjónustuverkstæði á höfuðborgarsvæðinu og býður fjölbreytta þjónustu fyrir atvinnubíla, vöru- og hópferðabíla og eftirvagna.

Finndu réttu lausnina Söluráðgjafar Landfara aðstoða þig við næstu skref

Ásgrímur Helgi Einarsson

Forstöðumaður
sölusviðs

Ólafur Þór Þórðarson

Sölustjóri vörubíla

Sigurður Einar Steinsson

Sölustjóri hópferðabíla