5. maí 2026

Daimler Truck fagnar 130 árum af frumkvöðlastarfi

130 ár eru síðan fyrsti vélknúni vörubíll heims leit dagsins ljós

130 years of trucks

Daimler Truck hefur hrundið af stað alþjóðlegri afmælisherferð undir yfirskriftinni „130 Years of Forward“, þar sem 130 árum frá því að fyrsti vélknúni vörubíll heims leit dagsins ljós árið 1896 er fagnað. Herferðin gefur tilefni til að líta yfir farinn veg og er skýr yfirlýsing um þá vegferð sem framundan er, þar sem nýsköpun, sjálfbærni og tækniframfarir móta framtíð flutninga.

Frumkvöðlaandi sem lifir áfram

Frá fyrstu uppfinningu Gottlieb Daimler árið 1896 til stöðu fyrirtækisins í dag sem leiðandi afl í alþjóðlegum flutningum hefur Daimler Truck ávallt verið drifið áfram af vilja til framþróunar.

„Frá frumkvöðlavinnu Gottlieb Daimler til stöðu okkar í dag hefur Daimler Truck verið knúið áfram af hugrekki til að horfa fram á veginn. Fyrir teymi okkar um allan heim er það heiður að bera þessa arfleifð – og um leið ábyrgð að móta það sem kemur næst,“
Karin Rådström, forstjóri Daimler Truck
fyrsti vörubíllinn
Fyristi vörubíllinn var einfaldur í sniðum

Upphafið sem breytti öllu

Fyrsti vörubíllinn var einfaldur í sniðum, hann var byggður á hestvagni og afhentur viðskiptavini í London. En áhrif hans voru djúpstæð. Á fáum árum hafði þessi nýja lausn rutt sér til rúms og lagt grunn að heilli atvinnugrein sem átti eftir að umbreyta flutningum um allan heim.

Á sama tíma voru fyrstu skref tekin í farþegaflutningum þegar Carl Benz hóf akstur með fyrsta vélknúna hópferðabílinn árið 1895. Þannig hófst þróun sem tengir samfélög enn í dag.

Gamall vörubíll

Í þjónustu samfélagsins

Frá þessum fyrstu skrefum hafa vörubílar og hópferðabílar gegnt lykilhlutverki í daglegu lífi. Þeir flytja vörur, tengja fólk og styðja við innviði samfélagsins, oft án þess að við tökum sérstaklega eftir því.

Það er þessi ósýnilegi en ómissandi þáttur sem heldur samfélögum gangandi; frá vörum í verslunum til þjónustu sem tryggir að borgir og byggðir starfi eðlilega.

Sterk staða í dag

Í dag starfa um 100.000 manns hjá Daimler Truck á heimsvísu og fyrirtækið býður upp á fjölbreytt úrval vörumerkja, lausna og þjónustu sem viðskiptavinir treysta á í daglegum rekstri.

Fyrirtækið hefur náð leiðandi stöðu á lykilmörkuðum og er í fararbroddi í rafvæðingu flutninga í Evrópu. Þessi staða endurspeglar skýra stefnu þar sem tækniframfarir og þarfir viðskiptavina fara saman.

Horft fram á veginn

Afmælisárið snýst ekki eingöngu um fortíðina. Með herferðinni „130 Years of Forward“ er sjónum beint að þeirri umbreytingu sem nú á sér stað í flutningageiranum.

Daimler Truck vinnur markvisst að því að draga úr kolefnisspori flutninga, þróa stafrænar lausnir og skapa ný tækifæri fyrir viðskiptavini. Rafvæðing gegnir þar lykilhlutverki, þar sem rafknúnir vörubílar á borð við Mercedes-Benz eActros 600 eru þegar orðnir að raunhæfum valkosti í daglegum rekstri. Samhliða því eru vetnislausnir í þróun sem munu gegna mikilvægu hlutverki til lengri tíma.

Á sama tíma heldur þróun áfram á hefðbundnum drifbúnaði, þar sem hagkvæmni og áreiðanleiki skipta enn miklu máli í fjölbreyttum verkefnum um allan heim.

eActros 600
Alrafmagnaður eActros 600

Stafræn þróun og samstarf

Framtíð flutninga mótast ekki aðeins af orkuvali heldur einnig stafrænum lausnum. Daimler Truck hefur lagt ríka áherslu á að þróa þjónustu sem styður við rekstur viðskiptavina, bætir yfirsýn og eykur rekstraröryggi.

Samstarf við önnur leiðandi fyrirtæki er þar lykilatriði og gerir kleift að þróa lausnir á sviði sjálfakandi aksturs, vetnistækni og hugbúnaðar sem munu móta flutninga framtíðarinnar.

Í fararbroddi síðan 1896