Á dögunum fékk Olíudreifing afhentan Mercedes-Benz Actros dráttarbíl sem mun þjónusta eldsneytisafgreiðslur á Suðurlandi.
Það var sjálfur Heimir Hoffritz sem mætti í eigin persónu og fékk bílinn afhentan í síðustu viku, keyrði fyrstu 1000 kílómetrana um helgina og lætur vel af bílnum, en hann mun verða bílstjóri á þessum bíl ásamt Antoni K Þorsteinsssyni.
Bíllinn er mjög vel búinn með 580hp vél, afar vel búnu ökumannshúsi og fyrsti ADR bíllinn hjá ODR sem er speglalaus.


