Hagkvæmari leið til að rafvæða flutninga
eActros 400 er búinn tveimur LFP rafhlöðupökkum, hvor um sig með 207 kWh af orku, sem saman gefa 414 kWh heildarrýmd en þaðan kemur heitið 400. Mismunandi útgáfur hafa mismunandi drægni sem ræðst bæði af stærð ökutækisins og notkun.
Við jafnan og stöðugan akstur á lengri leiðum næst yfirleitt meiri drægni en í svæðisbundnum flutningum. Til dæmis getur eActros 400 6x2 með flutningskassa, sem er sérstaklega hannaður fyrir hefðbundna notkun í dreifingarakstri, ekið allt að 480 kílómetra á einni hleðslu, miðað við hálfan farm og 20°C umhverfishita.
Eins og áður hefur eActros 600 þrjá rafhlöðupakka með samanlagt 621 kWh uppsetta rafhlöðugetu en þaðan kemur heitið 600. Þetta gerir mögulegt að aka allt að 500 kílómetra án hleðslu og jafnvel lengra, eftir gerð ökutækis, aksturslagi, leið og öðrum þáttum sem hafa áhrif á drægnina. Í hagkvæmustu samsetningunni getur eActros 600 náð allt að 560 kílómetra drægni með þremur rafhlöðupökkum í hefðbundnum langflutningum með 40 tonna heildarþyngd.
Ef eActros dráttarbíllinn er útbúinn með klassíska L-ökumannshúsinu og aðeins tveimur rafhlöðupökkum, nær hann allt að 330 kílómetra drægni við svipaðar aðstæður og í samskonar notkun. Auk þess geta viðskiptavinir valið á milli tveggja ökumannshúsa annars vegar hins trausta L-húss með lægri inngöngu og hins vegar ProCabin húsinu sem er sérstaklega hannað til að lágmarka loftmótsstöðu, og býður upp á hámarks þægindi fyrir ökumann.