Skip to content
29. jan. 2025

Við erum Landfari

Sleggjan heitir nú Landfari

Landfari er umboðsaðili Mercedes-Benz vöru og hópferðabíla.

Sleggjan, systurfélag Öskju, heitir nú Landfari og er umboðsaðili Mercedes-Benz vöru- og hópferðabíla á Íslandi.

Nýtt heiti fyrirtækisins er liður í þeim breytingum sem unnið hefur verið að á síðustu mánuðum til að mæta framtíðarþörfum viðskiptavina og styrkir enn frekar stefnu fyrirtækisins til framtíðar.

Áreiðanleg og skjót þjónusta

Markvisst hefur verið unnið að því að bæta þjónustu við viðskiptavini, meðal annars er nú boðið upp á kvöldþjónustu og hægt er að fá forgreiningu án tímabókunar. Sérhæfðum þjónustubílum hefur verið fjölgað en þeir eru ávallt til taks til að veita þjónustu á vegum úti eða á starfsstöð viðskiptavinar. Mikil áhersla lögð á endurmenntun og þjálfun starfsmanna sem skilar sér í betri þjónustu við viðskiptavini.

Aðstaða og samstarf

Starfsemi Landfara er í Desjamýri 10 í Mosfellsbæ en þar eru skrifstofur og söludeild nýrra Mercedes-Benz vöru- og hópferðabíla, auk þjónustuverkstæðis, varahlutalagers og verslunar í tæplega 2500 m2 glæsilegu húsnæði.

Landfari er einnig með starfsemi í Klettagörðum 4 í Reykjavík. Þar er lögð áhersla á viðgerðir á eftirvögnum og er sú þjónusta vaxandi. Starfsemin þar mun flytjast í stærra húsnæði að Klettagörðum 5 í sumar og um leið verður þjónustuframboð aukið.

1. júní verður svo opnað nýtt 1000m2 fullbúið verkstæði fyrir atvinnubíla og eftirvagna að Álfhellu 15 í Hafnarfirði. Verkstæðið er mjög vel útbúið til að þjónusta atvinnutæki.

Landfari er viðurkenndur þjónustuaðili fyrir Hammar gámalyftur og er að auki sölu- og þjónustuaðili fyrir Faymonville og VAK vagna.

Í fararbroddi í orkuskiptum

Eiríkur Þór Eiríksson, framkvæmdastjóri Landfara: „Það eru spennandi tímar fram undan hjá Landfara. Við erum að stórefla þjónustuna með stærra húsnæði í Klettagörðum og nýrri staðsetningu að Álfhellu 15 í Hafnarfirði, en þar verður opnað fullbúið verkstæði fyrir atvinnubíla 1. júní næstkomandi. Orkuskipti í flutningum eru að slíta barnsskónum en Mercedes-Benz Trucks er í fararbroddi í þróun rafknúinna vörubíla og undirbúum við nú komu eActros 600 en það er vörubíll með allt að 500 km drægni á einni hleðslu miða við 40 tonna þyngd”.

“Amazon keypti á dögunum 200 slíka bíla til að sinna flutningum í Bretlandi og í Evrópu. Fyrstu bílarnir koma til landsins á næstu vikum og fyrri hluta árs 2027 eigum við von á fyrstu rafknúnu hópferðabílunum frá Mercedes-Benz" segir Eiríkur.

Nafnið Landfari

Spurður um nýja nafnið segir Eiríkur að heitið Landfari komi úr ranni Jóns Þorvaldssonar sem er maðurinn á bak við nöfn fjölmargra íslenskra fyrirtækja. „Landfari skírskotar sterklega til meginstarfsemi fyrirtækisins sem er sala og þjónusta við fyrirtæki sem sinna flutningum á vörum og fólki um landið.“

Landfari er dótturfélag Vekru sem einnig er eigandi Bílaumboðsins Öskju er viðurkenndur sölu og þjónustuaðili Mercedes-Benz, Kia, Honda og smart. Vekra á jafnframt bílaumboðið Unu, sem er umboðsaðili Xpeng á Íslandi, ásamt eignarhaldi á Hentar og Dekkjahöllinni. Vekra á auk þess meirihluta í bílaleigunni Lotus. Vekra velti á árinu 2024 um 30 milljörðum og eru starfsmenn félaganna um 250 talsins.