Skip to content
14. apríl 2026

Tourismo með sterka stöðu á Íslandi

40.000 bílar framleiddir

Nýverið rúllaði Tourismo hópferðabíll númer 40.000 úr verksmiðju Daimler Buses í Tyrklandi. Bíllinn hefur um árabil verið söluhæsti hópferðabíll í Evrópu og nýtur mikils trausts meðal rekstraraðila, bæði erlendis og hér á landi.

Tourismo hópferðabíllinn frá Mercedes-Benz hefur markað sér sterka stöðu í Evrópu. Bíllinn hefur verið í framleiðslu frá árinu 1992, þegar fyrstu O 340 gerðirnar komu á markað, en síðar tók við þróaðri O 350 útfærsla sem festi enn frekar sess í hópferðageiranum.

Núverandi kynslóð Tourismo, sem Daimler Buses hefur framleitt frá árinu 2018 byggir á áratuga reynslu og sameinar hagkvæmni, þægindi og öryggi á háu stigi.

Sterk staða á Íslandi

Hér á landi hefur Tourismo notið mikilla vinsælda og reynst eigendum sínum afar vel í krefjandi aðstæðum. Fyrsti nýi Tourismo hópferðabíllinn var afhentur árið 2001 þegar Ræsir, þáverandi umboðsaðili Mercedes-Benz á Íslandi, afhenti bíl til Suðurleiða.

Fyrsti Tourismo bíllinn afhentur af Ræsi hf. til Suðurleiða árið 2001

Síðar, árið 2014, afhenti Askja Tourismo bíl til Guðmundar Jónassonar, og frá þeim tíma hefur eftirspurn haldið áfram að aukast.

Samanlagt hafa Askja og síðar Landfari afhent og selt yfir 80 Tourismo bíla á Íslandi, sem undirstrikar sterka stöðu bílsins á markaðnum.

Askja afhendir fyrsta Tourismo bílinn 2014 - Páll Halldór, Gunnar Guðmundsson, Jón Trausti og Agnar Daníelsson
Við afhendingu á nýjum Tourismo janúar 2024 - Magnús Ingi Traustason, Sigurður Einar og Trausti Ágústsson
Tveir yfirmenn Daimler Bus sumarið 2024 - Deniz Kuluhan, Björn Ragnarsson, Thomas Tonger og Sigurður Einar

Horft til framtíðar

Á árinu 2026 verða afhentir ríflega 20 nýir Tourismo bílar hér á landi og er þegar verið að ganga frá sölu á bílum til afhendingar árið 2027.

Þessi þróun endurspeglar áframhaldandi traust rekstraraðila á Tourismo, bíl sem hefur sannað gildi sitt í daglegum rekstri, ár eftir ár.

Nýr Tourismo í eigu GJ Travel
Nýr Tourismo í eigu Bus4u
Nýr Tourismo afhentur Snælandi Grímssyni 2017 - Hlynur Snæland, Lárus Sigurðsson og Hallgrímur Lárusson
Nýr Tourismo K afhentur SBA sumarið 2018 - Gunnar M. Guðmundsson og Sigurður Einar