10. júlí 2026

Tveir nýir Mercedes-Benz hópferðabílar til Vestfirskra ævintýraferða

Mercedes-Benz Tourismo og Intouro bætast við flota Vestfirskra ævintýraferða á Ísafirði.

Tourismo-Landfari

Á undanförnum vikum höfum við hjá Landfara afhent Vestfirskum ævintýraferðum á Ísafirði tvo glæsilega hópferðabíla frá Daimler Buses.

Sá fyrri er Mercedes-Benz Tourismo 16 RHD, 57 farþega hópferðabíll sem er glæsileg viðbót við sívaxandi Tourismo-flota á Íslandi. Tourismo hefur notið mikilla vinsælda undanfarin ár og hefur fest sig í sessi sem einn vinsælasti hópferðabíll landsins.

Tourismo West Travel séð að utan
Daimler Trucks - Tourismo innanrými

Einnig afhentum við fyrirtækinu Mercedes-Benz Intouro M/2, 61 farþega bíl. Intouro er hannaður sem hagkvæmur og þægilegur dagsferðabíll. Hann er lægri en Tourismo, sem auðveldar farþegum að ganga um bílinn og eykur aðgengi fyrir alla um borð.

Þrátt fyrir hagkvæma hönnun skerðir Intouro ekkert þægindin, enda eru innrétting og sæti sambærileg því sem farþegar þekkja úr Tourismo. Bíllinn er því afar góður kostur fyrir styttri ferðir og dagstúra.


Báðir bílarnir eru nú komnir til Ísafjarðar og þegar farnir að sinna akstri ferðamanna af skemmtiferðaskipum um hina stórbrotnu Vestfirði.

Intouro West Travel - fyrir utan Landfara
Intouro West Travel - tekið á móti

Við óskum Vestfirskum ævintýraferðum innilega til hamingju með þessa glæsilegu viðbót við flotann og þökkum fyrir traustið.